Efling samstarfs við atvinnulífið

Háskóli Íslands vill efla samstarf við atvinnulífið með framboði á starfsþjálfun í grunnnámi sem leiðir saman metnaðarfulla nemendur annars vegar og hins vegar fyrirtæki og stofnanir með sameiginlegan ávinning allra aðila að leiðarljósi.

Öflug og sterk tengsl milli háskóla og atvinnulífs eru nauðsynleg og leitast er við að styrkja gæði náms og kennslu þannig að skólinn svari margvíslegum og síbreytilegum þörfum samfélags og atvinnulífs

Laus starfsþjálfunarpláss

Starfsþjálfun

Fulltrúar Háskóla Íslands, atvinnulífs og hins opinbera hafa samið um að efla sitt samstarf og auka möguleika háskólanema á starfsþjálfun, en slíkt gagnast í senn háskólanemum, atvinnulífi og samfélaginu öllu. Þau Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, settust niður af þessu tilefni og ræddu mikilvægi öflugrar starfsþjálfunar í nútíð og framtíð.

Fjölbreyttur ávinningur er fólginn í því að bjóða nemendum starfsþjálfun

Ávinningur fyrirtækja

  • Stjórnendur fyrirtækja og stofnana fá aðgang að nýjustu þekkingu á viðfangsefnum og fræðum í gegnum nemendur.
  • Greiðari aðgangur að framtíðarmannauði
  • Eflir tengsl fyrirtækja og stofnana við háskólasamfélagið

Ávinningur nemenda

  • Nemendur öðlast reynslu og þekkingu af starfi sem tengist beint námi þeirra undir leiðsögn sérfræðinga í atvinnulífinu.
  • Nemendur fá tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni
  • Brúarsmíð á milli fræða og framkvæmda og sýnileg tengsl við hæfniviðmið námsleiðar
  • Nemendur efla sitt faglega tengslanet og styrkja fagvitund sína

Hér segja nemendur og fulltrúar Háskólans og fyrirtækja sem þegar hafa tekið þátt í slíku samstarfi frá reynslunni:

Hvernig fer starfsþjálfunin fram?

  • Unnið er að skilgreindum verkefnum hjá fyrirtæki sem tengist námi nemandans og gerður samstarfssamningur þar að lútandi.
  • Nemandinn nýtur leiðsagnar sérfræðings og starfsfólks
  • Alla jafna er umfangið er 150 klukkustundir sem er ígildi 6 ECTS eininga. Einnig er hægt að skoða aðrar einingasamsetningu.
  • Ólaunuð starfsþjálfun

Hver er nemendahópurinn?

Grunnnemendur sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25)

Framhaldssnemendur sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn /7,25)

Hvernig skal skrá sig til samstarfs?

Fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög sem eru áhugasöm um að taka þátt í verkefninu eru hvött til að sækja um á eyðublaði hér fyrir neðan eða í tölvupósti á starfsthjalfun@hi.is

Vitnisburðir 

,,Kynslóðir verða að mentora hvora aðra upp og niður og mikilvægt að Háskólasamfélagið og atvinnulífið séu í stöðugu samtali. FKA gerði því samning við Viðskiptafræðideild um að fá nemendur í starfsþjálfun Voru þær XYZ og XYZ valdar úr hópi umsækjenda og það hefur verið algjörlega geggjað að fylgjast með þeim springa út og eflast.“

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA

,,Samstarfið við Viðskiptafræðideildina hefur gengið mjög vel. Við vorum ánægð með ferlið og hversu lítið flækjustig var á ferlinu. Starfsneminn okkar stóð sig með prýði. Við erum almennt mjög ánægð með þetta allt saman og hlökkum til að taka á móti næsta starfsnema á næsta ári“.

Sigurður Möller, sérfræðingur í áætlanagerð og greiningu hjá Vegagerðinni

Eyðublað fyrir fyrirtæki