Atvinnudagar HÍ
Atvinnudagar HÍ fara fram á vormisseri ár hvert. Þar er lögð sérstök áhersla á atvinnumál og undirbúning nemenda HÍ fyrir þátttöku á vinnumarkaði.
Markmið Atvinnudaga er að veita fræðslu um starfsþróun á meðan á háskólanámi stendur og undirbúa nemendur fyrir innkomu á vinnumarkaði. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá með kynningum, fyrirlestrum, heimsóknum og spjalli. Hver dagur hefur sitt eigið þema sem vekur athygli og áhuga stúdenta!
Dagskráin hefur verið fjölbreytt í gegnum tíðina og hafa Nemendaráðgjöf HÍ og Tenglsatorg HÍ átt gott samstarfi við Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ, Miðstöð framhaldsnáms, Vísindagarðar HÍ og KLAK – Icelandic startups við undirbúning og skipulag Atvinnudaga.
Hafir þú eða fyrirtækið þitt áhuga á að taka þátt í Atvinnudögum HÍ má senda fyrirspurn á netfangið tengslatorg@hi.is
