NÝSKÖPUN

Hefurðu áhuga á nýsköpun?

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreyttar leiðir sem stúdentar geta valið til að komast út á vinnumarkaðinn og efla starfsþróun sína.

Árlega stendur Tengslatorg fyrir Atvinnudögum HÍ, þar sem lögð er sérstök áhersla á nýsköpun og frumkvöðlastarf í samstarfi við Vísindagarða HÍ og KLAK Icelandic Startups.

Kynntu þér leiðir í átt til nýsköpunar og sköpunar hugvits, hvort sem það er í háskólanámi, með þátttöku í hvers kyns verkefnum tengdri nýsköpun eða einfaldlega hvernig þú getur komið hugmynd í framkvæmd.

Háskóli Íslands – Leiðandi í nýsköpun

Á heimasíðu Háskóla Íslands er að finna gagnlegar upplýsingar fyrir þau sem hafa áhuga á nýsköpun, vilja stunda nám á þessu sviði, starfa að nýsköpun eða leita að stuðningi við að þróa hugmyndir sínar og hefja nýsköpunarvegferð.

Viltu læra nýsköpun í Háskóla Íslands?

Nýsköpun er mikilvægur þáttur í framþróun samfélaga, fyrirtækja og einstaklinga. Með nýsköpun er hægt að skapa nýjar vörur, þjónustu eða ferla til að bæta líf fólks, auka hagvöxt og skapa störf. Háskóli Íslands býður bæði upp á námsleiðir og einstök námskeið sem tengjast nýsköpun og frumkvöðlafræði.

Viltu starfa við nýsköpun?

Fyrirtæki sem vinna að nýsköpun eru fjölmörg á Íslandi og mörg hver að vinna framúrskarandi frumkvöðlavinnu sem hefur vakið eftirtekt víða um heim. Háskóli Íslands á í mjög góðu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir sem skapar tækifæri fyrir nemendur og starfsfólk til að starfa að nýsköpun.

Spurt og svarað

Á þessari síðu má finna svör við ýmisskonar spurningum sem tengjast nýsköpun. Svo sem, hvað er nýsköpun, dæmi um viðskiptalíkan og lista yfir atriði sem setja þarf í góða viðskiptaáætlun. Hvaða aðstoð er í boði til að fullmóta hugmynd ásamt fjármögnun.

Skapa.is

Nýsköpunargátt sem veitir frumkvöðlum upplýsingar og yfirlit yfir stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi, allt á einum stað.

Vísindagarðar HÍ

Vísindagarðar í Vatnsmýri eru vettvangur fyrir samstarf háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja.

Sprotamýri

Sprotamýri er frumkvöðlasetur Háskóla Íslands í Grósku þar sem nemendur og starfsmenn geta fengið aðstöðu.