Klak Icelandic startups – Markaðsmál

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

KLAK Icelandic Startups og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins gegnum starfsþjálfun.

KLAK hjálpar sprotafyrirtækjum að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga,fjárfesta og aðra lykilaðila.

Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem lokið hafa 90 ECTS með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem lokið hafa 60 ECTS með fyrstu einkunn (7,25).

  • Fyrirtæki
    Klak Icelandic startups
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
• Gerð og birting efnis á samfélagsmiðlum KLAK og tengdum verkefnum • Efnisgerð fyrir vefsíðu, fréttatilkynningar og aðra miðla • Skipulag og utanumhald markaðsherferða og kynningarefnis • Hönnun og framsetning markaðsefnis í samstarfi við teymið • Viðburðamarkaðssetning, t.d. auglýsingar fyrir vísindaferðir Gulleggsins í Grósku • Greining og úrvinnsla gagna um árangur markaðsstarfs
Hæfniskröfur

• Áhugi á nýsköpun
• Áhugi á markaðsmálum og auglýsingagerð
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð mannleg samskipti
• Góð íslenskukunnátta

Tengiliður
vidskipti@hi.is