Klak Icelandic Startup – Verkefnastjórnun

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

KLAK Icelandic Startups og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins gegnum starfsþjálfun. Nemendur vinna undir leiðsögn verkefnastjóra.

KLAK – Icelandic Startups er óhagnaðardrifið félag sem styður við samfélag frumkvöðla á Íslandi og eru skrifstofur fyrirtækisins í Grósku. KLAK keyrir árlega 3-4 viðskiptahraðla með mismunandi áherslum ásamt því að halda Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni landsins.

KLAK hjálpar sprotafyrirtækjum að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga, fjárfesta og aðra lykilaðila.

  • Fyrirtæki
    Klak Icelandic startup
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
• Stýring og utanumhald hraðla, viðburða og verkefna hjá KLAK • Vinna í verkefnastjórnunarkerfum • Halda utan um tímalínur og framvindu verkefna • Styðja við starfsemi KLAK á fjölbreyttan hátt
Hæfniskröfur

• Áhugi á nýsköpun og verkefnastjórnun
• Geta til að skipuleggja verkefni og halda utan um tímalínur
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð mannleg samskipti og skipulagshæfni
• Góð íslenskukunnátta

Tengiliður
vidskipti@hi.is