Markaðs- og samskiptasvið HÍ

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands leitar að nemanda sem hefur áhuga á að öðlast dýrmæta reynslu við miðlun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum og viðburðastjórnun.

Unnið er með fjölbreyttum og reynslumiklum hópi starfsfólks að því að kynna starf skólans fyrir verðandi nemendum, háskólasamfélaginu og almenningi.

Ef þú vilt læra meira þá höfum við pláss fyrir þig.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Háskóli Íslands
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Miðlun og markaðssetning á samfélagsmiðlum Aðstoð vegna viðburða Efnissköpun fyrir miðla sem skólinn heldur úti Ýmis önnur verkefni í vefmiðlun og upplýsingagjöf
Hæfniskröfur

Góð þekking á markaðsfræði og vörumerkjastjórnun
Mikill áhugi á samfélagsmiðlum og markaðssetningu
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta

Tengiliður
vidskipti@hi.is