Nýsköpunarsjóðurinn Kría (NSK) og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi sjóðsins í gegnum starfsþjálfun.
NSK fjárfestir í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum á fyrstu stigum ásamt vísisjóðum og styður við nýsköpunarumhverfið á Íslandi.
Í starfsþjálfun hjá NSK fá nemar innsýn inn í hin ýmsu verkefni NSK.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is