Crowberry Capital og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum að kynnast starfsemi félagsins. Hjá Crowberry starfa 6 aðilar og mun neminn koma til með að starfa náið með öllum í teyminu og fá tækifæri til að starfa í alþjóðlegu fjárfestinga og sprota umhverfi frá Íslandi.
Crowberry Capital er vísisjóður en það er tegund fjárfestingasjóða sem fjárfestir í nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum (þ.e. sprotafyrirtæki eða startups) á pre-seed og seed stigum. Crowberry er með yfir $150 milljónir í eignastýringu í tveimur sjóðum og fjárfestir á öllum Norðurlöndunum.
Hingað til hefur Crowberry fjárfest í yfir 20 fyrirtækjum m.a. í fjártækni, heilbrigðistækni, B2B SaaS lausnir, leikjafyrirtæki og öðrum hugbúnaðarlausnum.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.