Danól í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi sölu- og markaðssviðs félagsins í gegnum starfsþjálfun.
Félagið, sem stofnað var árið 1932, er dótturfélag Ölgerðarinnar og flytur og selur vörur frá mörgum þekktum alþjóðlegum vörumerkjum í matvöru, snyrti- og sérvöruflokkum.
Starfsemin skiptist í þrjú svið: matvöru, stóreldhús- og kaffiþjónustu, og snyrti- og sérvöru. Í hverri einingu starfar fagfólk sem tryggir viðskiptavinum reynslu, fagmennsku, yfirgripsmikla þekkingu og framúrskarandi þjónustu.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is