Íslandsbanki

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Íslandsbanki býður metnaðarfullum háskólanema í hagfræði, viðskiptafræði eða fjármálaverkfræði upp á spennandi starfsnám í greiningar-og fræðsludeild bankans. Greining og fræðsla er eining innan Markaðs-og samskiptasviðs Íslandsbanka sem vinnur greiningar, áætlanir og efni um efnahagsmál og fjármál.

Starfsnemi mun vinna að greiningum, gagnasöfnun, líkanagerð og efnissköpun auk annarra tilfallandi verkefna með sérfræðingum úr Greiningu og fræðslu.

Í starfsnámi hjá Íslandsbanka öðlast þú dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu undir leiðsögn reyndra sérfræðinga sem og innsýn í rekstur og starfsemi bankans. Íslandsbanki leggur áherslu á traustan rekstur og hlutverk bankans er að vera hreyfifafl til góðra verka í íslensku samfélagi og skapa virði til framtíðar á sjálfbæran hátt.

  • Fyrirtæki
    Íslandsbanki
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn. Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn og ekki má setja margar umsóknir saman, heldur skal senda hverja og eina í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is
Hæfniskröfur
  • Þekking eða mikill áhugi á efnahagsmálum
  • Færni í greiningu gagna og miðlun upplýsinga
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæði, frumkvæði og nákvæm vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna í teymi
Tengiliður
vidskipti@hi.is