Starfsþjálfunarstaða – Uppsetning tímalínu
Ertu skipulagður, nákvæmur og með áhuga á því að vinna með gögn og ferla í faglegu umhverfi? Við leitum að starfsþjálfunarnema sem vill taka þátt í að móta og setja upp tímalínu fyrirtækisins á skýran og aðgengilegan hátt.
Um verkefnið
Starfsþjálfunin felst í að vinna með fyrirliggjandi upplýsingar og setja upp skýra og notendavæna tímalínu sem sýnir helstu vörður, áfanga, verkháðni (e. task dependency) og lykilfundi fyrirtækisins. Markmiðið er að bæta yfirsýn og aðgengi að mikilvægum upplýsingum fyrir starfsfólk.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn og ekki má setja margar umsóknir saman, heldur skal senda hverja og eina í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is