Hefur þú áhuga á markaðsmálum og stafrænum miðlum?
Birta Media, í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ, býður upp á starfsnám þar sem þú færð að vinna með raunveruleg verkefni í stafrænum herferðum, samfélagsmiðlum og gagnagreiningu. Þú færð innsýn í hvernig árangur er byggður upp í alvöru verkefnum og vinnur með teymi sem starfar daglega með fyrirtækjum á íslenskum markaði.
Við leitum að skipulögðum og áhugasömum einstaklingi sem vill læra, taka frumkvæði og vaxa í faglegu umhverfi.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is