Coca Cola á Íslandi ásamt Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á starfsþjálfun. Að fara í starfsþjálfun hjá Coca Cola á Íslandi er frábært tækifæri á að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum með heimsþekkt vörumerki.
Við óskum eftir MS nema í viðskiptafræði í þessa stöðu.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is