Félagsvísindasvið HÍ – Markaðs- og kynningarmál

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands leitar að hugmyndaríkum og skapandi starfsþjálfunarnema sem vill öðlast hagnýta reynslu af kynningar- og markaðsstarfi í lifandi háskólaumhverfi.


Starfsþjálfunarnemi tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast kynningu sviðsins, markaðsherferðum, samfélagsmiðlum og daglegu starfi markaðs- og kynningarmála.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Félagsvísindasvið HÍ
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd markaðsherferða Efnisgerð fyrir samfélagsmiðla Hugmyndavinna fyrir kynningarefni og herferðir Aðstoð við textagerð, myndaval og framsetningu efnis Aðstoð við kynningu á námi, viðburðum og starfsemi sviðsins Önnur tilfallandi verkefni tengd kynningar- og markaðsmálum
Hæfniskröfur
  • Grunnþekking á markaðsmálum
  • Skapandi hugsun og frumkvæði
  • Hugmyndaauðgi og áhugi á efnisgerð
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram skýran texta
  • Áhugi á samfélagsmiðlum og stafrænum miðlum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
Tengiliður
vidskipti@hi.is