Skráning á starfi

Mundu að skrá þig inn áður en þú sendir inn auglýsingar!

Atvinnulífið

Tengslatorgið er sett á stofn árið 2016 og var liður í stefnu Háskóla Íslands HÍ21  Öflugur háskóli – farsælt samfélag undir liðnum: Virk þátttaka í samfélagi og atvinnulífi.  Eitt markmiðanna er að Háskólinn sé leiðandi afl í framþróun samfélagsins sem vettvangur nýrra hugmynda og lifandi samstarfs rannsakenda, nemenda, atvinnulífs, stofnana og þjóðlífs.

Undirliggjandi markmið er að efla aðgengi að símenntun og leggja áherslu á hæfni nemenda til að takast á við fjölbreytt störf og áskoranir í kvikum og tæknivæddum heimi.