Atvinnudagar HÍ 2026

Atvinnudagar HÍ fara fram 16. – 20. febrúar. Í dagskránni er lögð áhersla á undirbúning nemenda HÍ fyrir þátttöku á vinnumarkaði og að efla tengslanet og atvinnumál.

Það eru Nemendaráðgjöf HÍ (NHÍ), Tengslatorg HÍ, Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ, Miðstöð framhaldsnáms, Vísindagarðar HÍ og KLAK – Icelandic startups sem standa að dagskránni.

Fylgist vel með dagskránni – viðburðir munu bætast við.

Mánudagur 16. febrúar.

16:00 – 18:00 Opnun Atvinnudaga

Staðsetning: Mýrin, samfélag frumkvöðla í Grósku

Samstarfsaðilar: Vísindagarðar HÍ og KLAK – Icelandic startups.

16:00 Ávarp Silju Báru R. Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands.

16:10 – 16:30 Kynningar

  • Vísindagarðar
  • KLAK – Icelandic Startups
  • Nýsköpunarnefnd SHÍ

16:30 – 16:40
Reynslusögur nemenda HÍ af nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi Ómar Ingi Halldórsson – SagaReg
Alexandra Kristín Hafsteinsdóttir handhafi Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir verkefnið Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga.

16:40 – 17:20 Námsmenn og nýsköpun – brúum bilið

Pallborðsumræður
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups stýrir umræðum

Pallborðsgestir:

  • Ásta Dís Óladóttir, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ
  • Gísli Karl Gíslason, Gervigreindarsetur (AI Campus) í Mýrinni og djúptæknisetur
  • Helena Rut Sveinsdóttir, Sproti – Undralingur
  • Hörður Kári Harðarson, forstöðumaður þróunarsviðs lyfjaframleiðsluferla og lyfjaforma
  • Oddur Sturluson,  Vísinda- og nýsköpunarsvið HÍ, Sprotamýri og Snjallræði
  • Þorgerður E. Björnsdóttir, Nýsköpunarsjóður námsmanna hjá RANNÍS

17:20 – 18:00   Göngugata í Grósku

Frumkvöðlafyrirtæki kynna sig

Tilvalið tækifæri til tengslamyndunar.

Veitingar í borði

Þriðjudagur 17. febrúar

Dagskrá í samvinnu við Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ

  • Staðsetning: Litla Torgi 2. hæð, Háskólatorgi.

12:00 – 12:30 Svona geri ég betur fjárhagslega.

  • Björn Berg, sjálfstæður fyrirlesari og ráðgjafi á sviði persónulegra fjármála

12:30 – 13:00 Viska – stúdent: Stéttarfélög og háskólanemar

Gauti Skúlason frá Visku

15:00 – 16:00 The Keys to an Academic Career – Held in English

Event in collaboration with the UI Graduate School

  • Location: Online event – Register here
  • What does it take to get an academic job? What should you expect if you obtain an academic position after graduating? How can you plan for an uncertain future in a world in which there are fewer academic positions than PhD students? Experienced scholars from different fields will tell the story of their transition from graduate school to tenure-track jobs and give some hard-earned advice.
  • Panelists:
Miðvikudagur 18. febrúar

12:00 – 13:00 Fáðu þér sæti! Have a seat! Á íslensku og ensku

  • Staðsetning: Háskólatorg.
  • Brautskráðir stúdentar og Háskólavinir munu setjast yfir kaffi og kleinu með stúdentum og deila reynslu sinni af vinnumarkaði. Kjörið tækifæri til að kynnast nýju fólki og efla tengslanetið.

13:20 – 15:20 Opin CV vinnustofa – að undirbúa starfsumsókn – á íslensku

Dagskrá í samvinnu við Nemendaráðgjöf HÍ

  • Staðsetning: HT-300
  • Kjörið tækifæri til að koma og vinna í ferilskrá, kynningarbréfi eða til að spjalla við náms- og starfsráðgjafa um umsóknaferlið eða starfsviðtalið.

15:00 – 16:00 What Can I Do with my PhD Beyond Academia? – Held in English

In collaboration with the UI Graduate School

  • Location: Online event – Register here
  • How can PhD students with much education but perhaps less non-academic work experience make a career beyond traditional academia? In this event, PhDs who work outside the university tell the story of their own career trajectory.  Various experts will get you up to speed on the latest tools and techniques for exploring career options beyond the university. Held in English.
  • Panelists:
    • Dr. Amanda Cornwall, Associate Director for Graduate Student Professional Development, MIT
    • Dr. Joanna Ritz, Business Psychologist
    • Eyrún Lóa Eiríksdóttir, Project Manager for UI PhD Alumni Database phd.hi.is at the Division for Science and Innovation & PhD student in Comparative Literature, University of Iceland
      • The discussion will be moderated by Toby Erik Wikström, Project Manager at the Graduate School.

15:00 – 16:00 Heimsókn til ON – Orku Náttúrunnar, Bæjarhálsi

Dagskrá í samvinnu við Tengslatorg HÍ

Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun. ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum. ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.

ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

Hægt er að taka 100 nemendur að hámarki – skráning nauðsynleg

Fimmtudagur 19. febrúar

11:45 – 13:00 Ráðningaskrifstofur og atvinnumiðlanir

Dagskrá í samvinnu við Tengslatorg HÍ

  • Staðsetning: Háskólatorgi
  • Frábært tækifæri fyrir nemendur til að hitta fulltrúa ráðningaskrifstofa og atvinnumiðla.
    • Alfreð
      • Alfreð er stærsti atvinnumiðill landsins og hefur þjónað íslensku atvinnulífi í meira en áratug. Okkar hlutverk er að tengja saman fólk og fyrirtæki með stafrænum lausnum sem spara kostnað, tíma og fyrirhöfn. Tæp 90% landsmanna sem eru í atvinnuleit nota Alfreð til að leita að og sækja um næsta draumastarf. Nú hefur Alfreð kynnt til leiks Hæfnileit Alfreðs sem á eftir fjölga atvinnutækifærum Íslendinga enn frekar.
    • Hagvangur
      • Í meira en 50 ár hefur Hagvangur leitt saman fólk í atvinnulífinu af fagmennsku og trúnaði, með fyrsta flokks persónulega þjónustu að leiðarljósi
    • HH Ráðgjöf
      • Hjá HH Ráðgjöf starfa reynslumiklir sérfræðingar á sviði mannauðsmála og sjá um ráðningarferli fyrir fyrirtæki af öllum sviðum atvinnulífsins, allt frá stjórnendum til framlínustarfsfólks ásamt því að sinna margvíslegum mannauðsverkefnum.
    • Intellecta
      • Intellecta er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki með yfir tveggja áratuga reynslu af því að hjálpa fyrirtækjum og opinberum stofnunum í ráðningum og ráðgjöf. Við sameinum þekkingu okkar á rekstri, mannauði og tækni til að hjálpa fyrirtækjum að ná árangri. Hjá okkur mætast metnaður, fagmennska og raunveruleg þekking á vinnumarkaðnum.
    • Opus futura
      • Stafræn ráðningarlausn sem brýst út fyrir hefðbundin mörk. Opus Futura parar saman einstaklinga og þau störf sem henta þeim best með sjálfvirkum og nafnlausum hætti. Einstaklingar fá boð um starfstækifæri sem henta þeim, án þess að fara í gegn um tímafrekt umsóknarferli sem krefst stöðugra skrifa kynningarbréfa og aðlögunar ferilskráa. Þjónustan er einstaklingum að kostnaðarlausu.
      • Ráðum
        • Ráðum ehf. sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Ráðum hóf starfsemi í mars árið 2012 með það markmið að leiðarljósi að skapa virði með viðskiptavinum sínum í gegnum faglegar ráðningar og ráðgjöf.
      • Vinnvinn
        • Vinnvinn – ráðningar og ráðgjöf, byggir á áratuga reynslu við að tengja besta fólkið við bestu fyrirtækin. Farsæld viðskipta¬vina og samstarfs¬aðila er lykilatriði í okkar velgengni og það sem við brennum fyrir. Við erum þekkt fyrir að skapa virði, veita faglega ráðgjöf og sérfræðiþekkingu.

12:00 – 13:00 Getting in on the Action: Opportunities in the Icelandic Knowledge Economy for PhDs – Held in English

In collaboration with the UI Graduate School

  • Location: Online event! – Registration
  • Today the Icelandic economy is more than just fish and tourism: many knowledge-intensive companies have been founded in the past years in sectors such as green energy, pharmaceuticals and software development. But what does the new knowledge landscape look like, and what employment opportunities does it offer to PhDs?
  • In this event, roundtable experts will provide insight into the exciting, dynamic knowledge economy taking shape in Iceland, identify companies and institutions likely to be interested in PhDs, and explain how PhDs with extensive education but perhaps less work experience can get in on the action in the new knowledge domain.
  • Panelists:

13:00 – 15:00 CV workshop – preparing a job application

In collaboration with the UI Student Counselling Centre

  • Location: Ht: 300
  • An excellent opportunity to work on your CV or cover letter, or to discuss the application process or job interviews with a Career and Guidance Counsellor.

15:00 – 16:00 Er doktorsnám fyrir mig?

Í samvinnu við Miðstöð framhaldsnáms

  • Pallborðsumræður
  • Fjarfundur á Zoom – Skráning
  • Ert þú að velta fyrir þér hvort þú ættir að fara í doktorsnám, en er óviss um hvað það fæli í sér, bæði dagsdaglega á námstímanum og fyrir starfsmöguleika í framtíðinni? Fjölbreytt þríeyki kemur saman til að svara þessum spurningum út frá reynslu sinni. Þau munu líka ræða kosti þess að kjósa að fara í doktorsnám heima eða erlendis.
  • Þátttakendur:

Fundarstjóri er Toby Erik Wikström, verkefnisstjóri Miðstöðvar framhaldsnáms og rannsóknalektor við Mála- og menningardeild.

16:00 – 18:00 Komdu í heimsókn til Alvotech

Í samvinnu við Tengslatorg HÍ

Nemendur Háskóla Íslands eru boðnir velkomnir í fróðlega og skemmtilega vísindaferð þar sem þú færð tækifæri til að kynnast einu áhugaverðasta líftæknifyrirtæki landsins.

Skráning nauðsynleg – Hægt verður að taka á móti 60 nemendum.

Skilaboð frá Alvetech

Við kynnum starfsemi Alvotech, sýnum ykkur hluta af okkar öflugri aðstöðu og förum yfir hvernig við vinnum að því að þróa og framleiða lyf sem bæta líf fólks um allan heim.

Heimsóknin er frábært tækifæri til að:
• Sjá hvernig háþróuð líftækni fer fram í raunveruleikanum
• Spjalla við starfsfólk um nám, störf og tækifæri í greininni
• Eiga góða og lifandi stund með samnemendum

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila með ykkur því sem við erum að skapa hér hjá Alvotech, í hjarta Vísindagarða.

Föstudagur 20. febrúar

Í samvinnu við Nemendaráðgjöf HÍ

Stafrænn föstudagur / Digital Friday

Hér er hægt að skoða stafrænt fræðsluefni sem Nemendaráðgjöf HÍ býður upp á og nýtist við undirbúning að atvinnuleit.

Gerð ferilskrár

Gerð kynningarbréfs

Atvinnuviðtalið

Annað forvitnilegt

Styrkleikar okkar – VIA styrkleikakönnun

Styrkleikakönnun VIA getur auðveldað einstaklingum að átta sig betur á eigin styrkleikum. Könnunin metur 24 persónulega styrkleika fólks, sem skipt er í sex flokka: Viska og þekking, hugrekki, manngæska, réttlæti, yfirvegun og vitundarstig.
Mismunandi styrkleikar koma fram í ólíkum hlutverkum í lífi fólks og í mörgum tilfellum er hægt að yfirfæra þá og nýta í öðrum hlutverkum.
Í VIA könnuninni er tekin afstaða til 120 fullyrðinga og út frá þeim eru styrkleikar einstaklingsins kortlagðir. Hægt er að taka könnunina á íslensku og án endurgjalds hér.

Europass – evrópski færnipassinn
Europass er ókeypis og jafnframt örugg þjónusta á netinu sem gerir þér kleift að safna saman upplýsingum um hvað þú kannt og þannig getur þú stjórnað betur og skipulagt náms- og starfsferil þinn – bæði hér á Íslandi sem og í allri Evrópu.

Digital Friday

You can explore digital presentations offered by the UI Student Counselling Center about the job search

Click here to find short presentations on CV and cover letter writing

Other sources – digital career information and tools

Writing a CV and letter of introduction from the Directorate of Labour

VIA Character Strengths – online free survey to explore your strengths.
The VIA Character Strength survey can assist individuals in discovering and mapping out their strengths. The Survey looks at 24 personal strengths, categorized into 6 categories, wisdom, courage, humanity, justice, temperence and transcendence. A variance of strengths appear in the different roles an individual takes on and often you and transfer them between roles.

Europass – a free personal tool for learning and working in Europe

Online CV tool

Online Cover letter tool