66°Norður

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Starfsþjálfunarstaða – Uppsetning tímalínu
Ertu skipulagður, nákvæmur og með áhuga á því að vinna með gögn og ferla í faglegu umhverfi? Við leitum að starfsþjálfunarnema sem vill taka þátt í að móta og setja upp tímalínu fyrirtækisins á skýran og aðgengilegan hátt.

Um verkefnið

Starfsþjálfunin felst í að vinna með fyrirliggjandi upplýsingar og setja upp skýra og notendavæna tímalínu sem sýnir helstu vörður, áfanga, verkháðni (e. task dependency) og lykilfundi fyrirtækisins. Markmiðið er að bæta yfirsýn og aðgengi að mikilvægum upplýsingum fyrir starfsfólk.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn og ekki má setja margar umsóknir saman, heldur skal senda hverja og eina í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    66°Norður
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Aðstoð við uppsetningu og framsetningu tímalínu fyrirtækisins Skipulag og úrvinnsla gagna í Microsoft ExcelSetja tímalínuna upp í lifandi Gantt rit Samvinna við starfsfólk til að safna og staðfesta upplýsingar Tryggja nákvæmni, skýrleika og samræmi í framsetningu Lærdómsríka starfsþjálfun í faglegu umhverfi Tækifæri til að vinna að raunverulegu verkefni sem nýtist öllu starfsfólki Góða handleiðslu og stuðning í starfi Öfluga reynslu sem nýtist í áframhaldandi námi og starfsferli
Hæfniskröfur
  • Áhugi á skipulagi, upplýsingamiðlun og ferlum
  • Góð hæfni í Microsoft-umhverfinu, sér í lagi Excel
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, frumkvæði og vilji til að læra
  • Stundvísi og ábyrgð
  • Heiðarleiki í vinnubrögðum
  • Nákvæmni og vandvirkni
Tengiliður
vidskipti@hi.is