Arion banki

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Arion banki hf. og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi Arion banka í gegnum starfsþjálfun.

Arion banki veitir alhliða fjármálaþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga með það að markmiði að skapa verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, hluthöfum, samstarfsaðilum og samfélaginu öllu til góða. Bankinn ýtti úr vör langtíma átaksverkefninu Konur fjárfestum í byrjun árs 2024, verkefnið miðar að því að auka þátttöku kvenna í fjárfestingum og hefur á fyrstu tveimur árum verkefnisins fengið afar góðar viðtökur og skilað mælanlegum árangri.

Viðkomandi myndi starfa innan eininga sem koma að verkefninu en verkefnið er unnið á breiðum grunni fjölbreyttra sviða bankans.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Arion banki
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Gagnavinnsla úr kerfum bankans, m.a greiningar á gögnum tengt fjármálamörkuðum og fjárfestingum einstaklinga. Úrvinnsla kannana og eftirfylgni með mælikvörðum verkefnisins Efnisvinnsla og aðkoma að viðburðum og stefnumótun
Hæfniskröfur
  • Þekking á verðbréfamörkuðum
  • Þekking og geta til að vinna úr gögnum og þ.a.l. þekking á helstu
  • forritum á borð við Excel og PowerBI.
  • Greiningarfærni og öguð vinnubrögð
Tengiliður
vidskipti@hi.is