Birta Media

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Hefur þú áhuga á markaðsmálum og stafrænum miðlum?

Birta Media, í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ, býður upp á starfsnám þar sem þú færð að vinna með raunveruleg verkefni í stafrænum herferðum, samfélagsmiðlum og gagnagreiningu. Þú færð innsýn í hvernig árangur er byggður upp í alvöru verkefnum og vinnur með teymi sem starfar daglega með fyrirtækjum á íslenskum markaði.


Við leitum að skipulögðum og áhugasömum einstaklingi sem vill læra, taka frumkvæði og vaxa í faglegu umhverfi.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Birta Media
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Markaðssetning á netinu Hugmyndavinna Eftirfylgni með samfélagsmiðlaplani Umsjón með Google og Facebook herferðum Gagnagreining
Hæfniskröfur
  • Á auðvelt með að vinna í teymi
  • Góð samskiptafærni
  • Áreiðanleiki
  • Sköpunargleði
Tengiliður
vidskipti@hi.is