Frábært tækifæri til þess að taka þátt í fjölbreyttum fjármálatengdum verkefnum í alþjóðlegu fyrirtæki. Staðan krefst góðrar íslenskukunnáttu.
Við óskum eftir MS nema í þessa stöðu.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is