Crowberry Capital

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Crowberry Capital og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum að kynnast starfsemi félagsins. Hjá Crowberry starfa 6 aðilar og mun neminn koma til með að starfa náið með öllum í teyminu og fá tækifæri til að starfa í alþjóðlegu fjárfestinga og sprota umhverfi frá Íslandi.

Crowberry Capital er vísisjóður en það er tegund fjárfestingasjóða sem fjárfestir í nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum (þ.e. sprotafyrirtæki eða startups) á pre-seed og seed stigum. Crowberry er með yfir $150 milljónir í eignastýringu í tveimur sjóðum og fjárfestir á öllum Norðurlöndunum.

Hingað til hefur Crowberry fjárfest í yfir 20 fyrirtækjum m.a. í fjártækni, heilbrigðistækni, B2B SaaS lausnir, leikjafyrirtæki og öðrum hugbúnaðarlausnum.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

  • Fyrirtæki
    Crowberry Capital
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Greiningar á fjárfestingartækifærum Stuðningur við fyrirtæki í eignasafni Crowberry Aðstoð við uppbyggingu á Crowberry brandinu
Hæfniskröfur
  • Brennandi áhugi á nýsköpun, tækni og fjárfestingum
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
  • Góð hæfni á sviði greiningar
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
Tengiliður
vidskipti@hi.is