Félagsvísindasvið Háskóla Íslands leitar að hugmyndaríkum og skapandi starfsþjálfunarnema sem vill öðlast hagnýta reynslu af kynningar- og markaðsstarfi í lifandi háskólaumhverfi.
Starfsþjálfunarnemi tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast kynningu sviðsins, markaðsherferðum, samfélagsmiðlum og daglegu starfi markaðs- og kynningarmála.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is