KLAK Icelandic Startups og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins gegnum starfsþjálfun.
KLAK hjálpar sprotafyrirtækjum að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga,fjárfesta og aðra lykilaðila.
Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem lokið hafa 90 ECTS með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem lokið hafa 60 ECTS með fyrstu einkunn (7,25).