Kontakt

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Kontakt er ein elsta sjálfstæða fyrirtækjaráðgjöf landsins og kemur árlega að fjölbreyttum verkefnum á sviði eigendaskipta, fyrirtækjaráðgjafar og endurskipulagningar.

Nú gefst nemendum einstakt tækifæri til að kynnast starfsemi Kontakt í návígi og fá innsýn í raunveruleg verkefni fyrirtækisins undir leiðsögn verkefnastjóra.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Kontakt
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
• Verðmat á fyrirtækjum • Verkefni í fyrirtækjaráðgjöf • Greining á viðskiptatækifærum • Samantekt á atvinnugreinum • Markaðsgreiningar
Hæfniskröfur

• Góð Excel kunnátta
• Góð kunnátta á PowerPoint

Tengiliður
vidskipti@hi.is