Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands leitar að nemanda sem hefur áhuga á að öðlast dýrmæta reynslu við miðlun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum og viðburðastjórnun.
Unnið er með fjölbreyttum og reynslumiklum hópi starfsfólks að því að kynna starf skólans fyrir verðandi nemendum, háskólasamfélaginu og almenningi.
Ef þú vilt læra meira þá höfum við pláss fyrir þig.
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.
Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.
Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is