Parkinsonsamtökin

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Starfsþjálfun hjá Parkinsonsamtökunum

Parkinsonsamtökin óska eftir áhugasömum nema til að taka þátt í spennandi verkefni. Starfsþjálfunin er kjörið tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu hjá félagasamtökum sem eru í mikilli þróun og uppbyggingu – og hafa jákvæð áhrif á líf fjölda einstaklinga.

Um Parkinsonsamtökin
Parkinsonsamtökin voru stofnuð árið 1983. Hlutverk samtakanna er að stuðla að auknum lífsgæðum fyrir fólk með Parkinson og skylda sjúkdóma og fjölskyldur þeirra. Samtökin reka Takt endurhæfingu þar sem boðið er upp á fjölbreytta þjálfun, fræðslu, ráðgjöf og stuðning í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði.

Hagnýtar upplýsingar
Staðsetning: Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

  • Fyrirtæki
    Parkinsonsamtökin
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
• Hagnýta reynslu af raunverulegu og afmörkuðu verkefni • Tækifæri til að móta og hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum • Innsýn í starfsemi félagasamtaka og þriðja geirans • Leiðsögn og aðstoð frá framkvæmdastjóra og starfsfólki • Líflegt og skemmtilegt starfsumhverfi í Lífsgæðasetri St. Jó Markaðssetning og kynningarstarf Heildstæð markaðsáætlun til að koma Parkinsonsamtökunum betur á framfæri og auka almenna þekkingu á sjúkdómnum og starfsemi samtakanna. • Lykilskilaboð og markhópar: skilgreina lykilskilaboð og greina markhópa. • Miðlar: kanna hvaða miðlar henta best fyrir hvern markhóp. • Markaðsdagatal: setja upp markaðsdagatal fyrir árið með reglulegum viðburðum sem hægt er að tengja við fjáröflun samtakanna. • Samstarf: geina mögulega samstarfsaðila í tengslum við markaðsstarf og viðburði. • Fjölmiðlar: skilgreina leiðir til að koma samtökunum á framfæri í fjölmiðlum. • Kostnaðaráætlun: leggja fram raunhæfa kostnaðaráætlun fyrir framkvæmd markaðs- og kynningarstarfs.
Hæfniskröfur

• Áhugi á markaðssetningu og starfsemi samtakanna
• Frumkvæði og sköpunargleði
• Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
• Skipulagshæfni og metnaður

Tengiliður
vidskipti@hi.is