PwC Ísland

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Ert þú upprennandi endurskoðandi? 

PwC í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til þess að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun á endurskoðunarsviði PwC.

Í starfsþjálfun öðlast nemar haldbæra reynslu og fá innsýn inn í störf endurskoðenda. Unnið er undir handleiðslu reyndra sérfræðinga og fá nemendur tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Um leið og unnið er undir umsjón endurskoðenda eru nemendur í starfsþjálfun hvattir til virks samstarfs og frumkvæðis við verkefnavinnu. 

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    PwC Ísland
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
Uppgjör minni aðila Skattframtalsgerð Kannanir Endurskoðun stærri viðskiptavina
Hæfniskröfur
  • Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum
  • Góð þekking á Microsoft Excel
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Samskipta- og skipulagshæfni
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Tengiliður
vidskipti@hi.is