Sjóvá

Frestur 20.05.2026
Viðskiptafræðideild

Upplýsingar

Sjóvá og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemenda að kynnast starfsemi fyrirtækisins í gegnum starfsþjálfun.

Hjá Sjóvá starfar sterkur og skemmtilegur hópur fólks sem kappkostar að veita viðskiptavinum afburðaþjónustu. Viðskiptavinir Sjóvá eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra tryggingafélaga samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2023 og starfsánægja er með því mesta sem mælist hjá íslenskum fyrirtækjum.

Verkefnin eru á sviði mannauðs og gæðamála felast meðal annars í innleiðingu á rafrænu fræðslukerfi og endurskoðun starfsmannahandbókar og nýliðaþjálfunar.

Þessi staða er í boði fyrir meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25).

Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn.

Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi fyrir hverja umsókn.

Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is

  • Fyrirtæki
    Sjóvá
  • Frestur
    20.05.2026
  • Fræðasvið
    Viðskiptafræðideild
Lýsing á starfi
• Aðstoð við innleiðingu á rafrænu fræðslukerfi • Þarfagreining fræðslu • Endurskoðun starfsmannahandbókar • Endurskoðun starfslýsinga • Verkefni tengd nýliðaþjálfun og móttöku nýs starfsfólks
Hæfniskröfur

• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
• Þjónustulund og mikil samskiptahæfni
• Greiningarhæfni og nýsköpunarhugarfar

Tengiliður
vidskipti@hi.is